Skip to content

Cart

Your cart is empty

Kron by Kronkron Ursula Dulróf Green Burnout Velvet Dress

Sale price54.900 ISK
Stærð:

Esme kjóllinn frá Kron by Kronkron kemur hér í djúpgrænu Dulróf flaueli, þar sem mynstrið birtist og hverfur eftir því hvernig ljósið fellur á efnið. Stundum sér maður mynstrið skýrt, stundum hverfur það næstum inn í flauelið — og það er einmitt hluti af töfrunum.

Esme er með afslappað, beint snið, langar ermar og mjúkan kraga. Formið er einfalt og leyfir efninu að fá sitt pláss; flauelið fær að hreyfast, breyta um svip og sýna mismunandi tóna eftir birtu og hreyfingu.

Dulróf kemur úr hugmyndaheimi Hugrúnar og Magna. Í þessari grænu útgáfu verður mynstrið djúpt og næstum falið á köflum, en kemur svo skýrt fram aftur þegar ljósið færist yfir yfirborðið. Það gerir kjólinn svolítið lifandi — aldrei alveg eins frá einu augnabliki til annars.

Esme þarf ekki mikið plan. Hafðu hann hreinan og einfaldan, settu eitthvað undir eða yfir, blandaðu honum við lit og mynstur eða farðu alveg þína eigin leið. Okkur finnst alltaf skemmtilegast þegar flíkin fær að verða eitthvað annað hjá manneskjunni sem klæðist henni.

Upplýsingar

  • Litur: Dulróf Green
  • Mynstur: Dulróf burnout
  • Efni: 20% silki, 80% viskós
  • Efnisgerð: Létt silki-blandað flauel
  • Snið: Afslappað og beint
  • Kragi: Mjúkur kragi
  • Ermar: Langar ermar
  • Sídd: Niður á kálfa
  • Merki: Kron by Kronkron
  • Módel: Esme

Stærð og snið

Esme er með afslappaða, beina línu og gott rými yfir búkinn. Hann á að falla frjálslega frekar en að sitja þétt.

Front view of Kron by Kronkron Esme Dulróf Green burnout velvet dress with collar and long sleeves
Kron by Kronkron Ursula Dulróf Green Burnout Velvet Dress Sale price54.900 ISK